Viðskipti erlent

Nýr stjórnarformaður Twitter hefur tíst tólf sinnum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Nýr stjórnarformaður Twitter var ekki mjög virkur á samfélagsmiðlinum fyrir ráðningu sína.
Nýr stjórnarformaður Twitter var ekki mjög virkur á samfélagsmiðlinum fyrir ráðningu sína.
Twitter hefur ráðið starfsmann númer 11 hjá Google, Omid Kordestani, sem nýjan stjórnarformann fyrirtækisins. Kordestani er fyrsti stjórnarformaður Twitter sem ráðinn er utan fyrirtækisins frá stofnun þess árið 2006. Vonir eru bundnar við það að hann geti veitt fyrirtækinu nýja innsýn, en það hefur átt í miklum erfiðleikum við að fjölga notendum sínum úr 300 milljónum mánðarlega. Twitter hefur því átt í rekstrarerfiðleikum og tilkynni á dögunum að til stæði að fækka um 336 störf. Erfiðleikar hafa einnig staðið yfir meðal stjórnenda fyrirtækisins. Fyrir viku var Jack Dorsey, sem hafði verið stjórnarformaður fyrirtækisins síðan árið 2011, skipaður forstjóri þess.

Kordestani hóf störf hjá Google árið 1999 og starfaði síðast sem forstöðumaður viðskiptasviðs fyrirtækisins áður en hann sagði upp störfum í ágúst. Síðan þá hefur hann verið ráðgjafi Google á meðan það gekkst undir breytingar og varð að Alphabet. Kordestani hafði ekki verið mjög virkur á Twitter áður en hann var ráðinn, og hafði einungis tíst 8 sinnum, hann hefur nú tíst fjórum sinnum í viðbót um nýja starfið.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×