Viðskipti erlent

Vill afnema þjórfé í New York

Sæunn Gísladóttir skrifar
Danny Meyer á 13 þekkt veitingahús í New York borg.
Danny Meyer á 13 þekkt veitingahús í New York borg. Vísir/Getty
Danny Meyer, eigandi 13 veitingahúsa í New York borg, mun afnema þjórfé á veitingastöðum sínum í næsta mánuði. Meyer, sem rekur meðal annars veitingastaðinn The Modern, segir að þjórfé sé ósanngjarnt og gagnist einungis fáum starfsmönnum. Þjónar fá venjulega þjórfé en ekki aðrir starfsmenn veitingahúsa til að mynda kokkar.

Meyer ætlar að afnema þjórfé á veitingahúsum sínum frá og með næsta mánuði. Í staðinn mun verðið á matseðli hækka um 25-35%. Margir veitingastaðir í Bandaríkjunum eru að endurskoða launakerfið sitt því erfitt sé að fá kokka í vinnu þar sem þeir fá ekki þjórfé og eiga erfitt með að búa í borgum eins og New York, Chicago og San Francisco, þar sem lifnaðarkostnaður er mjög hár. Vegna þjórfés fá þjónar oftast mun hærri laun en hámenntaðir kokkar. Því hafa starfsmenn veitingahúsa beitt sér fyrir hærri launum undanfarin árin. 

Nokkur hágæða veitingahús hafa afnumið þjórfé nýlega, en veitingahúsin í eigu Meyer eru meðal þeirra best þekktu sem ætla að gera það. Forstjóri New York State Restaurant Association telur að þessi ákvörðun Meyer muni hafa áhrif á aðra veitingahúsaeigendur sem munu jafnvel ákveða að gera slíkt hið sama.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×