Í síðasta þætti af Matargleði var sunnudagur til sælu tekinn alla leið. Franskt eggjabrauð, ístertan hennar ömmu og auðvitað sunnudags lambalærið í hvítlauksmarineringu með ómótstæðilegri Bernaise sósu frá grunni.
Safaríkt lambakjöt með Bernaise1 lambalæri, beinlaust
100 g smjör
handfylli steinselja
handfylli rósmarín
4 hvítlauksrif
1 msk. ólífuolía
salt og nýmalaður pipar
2 sellerí stilkar
Nokkrar gulrætur
1 stór laukur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Setjið smjör, steinselju, rósmarín, hvítlauksrif, ólífuolíu,salt og pipar í matvinnsluvél og maukið.
- Nuddið lærinu upp úr hvítlaukssmjörinu og kryddið til með salt og pipar.
- Skerið grænmetið í bita og leggið í eldfast mót, setjið lambalærið yfir grænmetið.
- Eldið lærið í 50 – 60 mínútur, það fer eftir því hversu stórt lærið er.
- Á meðan lærið er í ofninum undirbúið þið meðlætið.
- Látið læri standa í 15 – 20 mínútur áður en þið skerið það.
- Berið fram með Hasselback kartöflum og ekta Bernaise sósu.
Hasselback kartöflur
4 stórar kartöflur
50 g smjör
2 msk ólífuolía
maldon salt og pipar
fersk steinselja
Aðferð:
Þessar kartöflur eru klassískt meðlæti með kjöti, rekja má þessar kartöflur til Svíþjóðar. Þær eru bæði svakalega góðar og einfaldar.
- Hitið ofninn í 220°C.
- Skolið kartöflurnar og skerið svo raufar í þær með stuttu millibili. Skerið djúpt niður en passið að kartaflan detti ekki í sundur.
- Smjör og olía eru brædd í potti.
- Raðið kartöflunum í ofnskúffu og hellið bræddu blöndunni yfir.
- Snúið kartöflunum nokkrum sinnum og veltið þeim þannig vel upp úr feitinni. Stráið maldon salti og pipar yfir kartöflurnar.
- Setjið í ofn og bakið í 55-60 mínútur. Mér finnst dásemd að skera niður ferska steinselju og sáldra yfir kartöflurnar þegar þær eru komnar út úr ofninum.
Bernaise sósa
5 eggjarauður
250 g smjör, skorið í teninga
1 msk Bernaise Essence
2 – 3 tsk. Fáfnisgras, smátt saxað
Salt og nýmalaður pipar
Bernaise Essence
1 dl hvítvínsedik
10 svört piparkorn
2 tsk fáfnisgras
3 skallottulaukar, smátt saxaðir
Aðferð:
- Útbúið Bernaise Essence, setjið hvítvínsedik, skallottulauk, fáfnisgras og svört piparkorn í pott og sjóðið saman þar til 1 msk af vökva er eftir. Sigtið vökvann og geymið til hliðar.
- Þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði og bætið smjörinu smám saman við, þetta er smá handavinna en er vel þess virði. Ef skálin er of heit takið þið hana af vatnsbaðinu og kælið, en haldið alltaf áfram að hræra. Það er mjög mikilvægt að skálin sé ekki of heit en annars eldast eggjarauðurnar.
- Bragðbætið með Bernaise Essence, salti og pipar.
- Gott er saxa niður ferskt fáfnisgras og sáldra yfir sósuna rétt í lokin.
Njótið vel.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.