Tónlist

Sjáðu myndband við We Will Live For Ages með Hjaltalín

Birgir Olgeirsson skrifar
Myndbandið var tekið upp í Marokkó.
Myndbandið var tekið upp í Marokkó.
Hljómsveitin Hjaltalín hefur sent frá sér myndband við lagið We Will Live For Ages. Myndbandið var tekið upp í Marokkó en söngvari sveitarinnar, Högni Egilsson, sá um myndatöku og leikstjórn þess.

Lagið kom út í maí síðastliðnum og var það fyrsta sem heyrðist frá hljómsveitinni frá því platan Enter IV kom út árið 2012. Sveitin verður eitt af aðalnúmerum tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves í haust þar sem þau verða meðal annars í Silfurbergi í Hörpu 6. nóvember næstkomandi ásamt Ariel Pink, Perfume Genius, Árstíðum og Grísalappalísu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×