Golf

Jason Day í efsta sæti heimslistans í golfi eftir enn einn sigurinn

Það er orðið að vikulegri hefð að birta mynd af Jason Day með nýjan bikar í hönd.
Það er orðið að vikulegri hefð að birta mynd af Jason Day með nýjan bikar í hönd. Getty.
Jason Day sigraði í sínu fjórða móti af síðustu sex sem hann hefur tekið þátt í en hann lék manna best á BMW meistaramótinu sem kláraðist í kvöld.

Það er erfitt að rifja upp mót á PGA-mótaröðinni sem hefur verið jafn óspennandi en Day lék fyrstu tvo hringina á Conway Farms vellinum á 18 höggum undir pari og eftir það leit aldrei út eins og að hann ætlaði að láta af forystunni.

Day endaði á samtals 22 höggum undir pari en Daniel Berger tryggði sér annað sætið á 16 undir pari.

Rory McIlroy og Rickie Fowler léku vel alla helgina og enduðu samtals á 14 höggum undir pari en náðu þó aldrei að gera atlögu að Day sem var einfaldlega í sérflokki.

Jason Day er því aðeins þriðji kylfingurinn á PGA-mótaröðinni sem sigrar í fimm mótum á sama árinu síðan árið 2003 en hinir tveir sem hafa afrekað það eru Vijay Singh og Tiger Woods.

Fyrir sigurinn fékk Day 170 milljónir króna í verðlaunafé en ásamt því fer hann í efsta sæti heimslistans í golfi í fyrsta sinn á ferlinum.

Næsta mót á PGA-mótaröðinni, Coca Cola meistaramótið, er það síðasta á þessu tímabili og markar enda úrslitakeppni mótaraðarinnar, en aðeins 30 stigahæstu kylfingar hennar fá þáttökurétt í mótinu.

Það leika allir bestu kylfingar heims um milljarða króna en mótið hefst á fimmtudaginn næsta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×