30.000 fyrirframpantanir á Opel Astra Finnur Thorlacius skrifar 21. september 2015 09:16 Forstjóri Opel í Þýskalandi, Dr. Karl-Thomas Neumann, sagði við frumsýninguna að tilkoma Astra væri risastökk í millistærðarflokki bíla.
Framlag Opel á bílasýningunni í Frankfurt hefur vakið mikla athygli með frumsýningu á 11. kynslóð Opel Astra. Mikill metnaður liggur að baki þessu verkefni, enda er bílgerðinni ætlað að skrifa nýjan kafla í sögu Opel á heimsvísu. “Við áttum sannarlega von á góðu, en þetta toppar allt,” sagði Dr. Karl-Thomas Neumann, forstjóri Opel í Þýskalandi, í viðtali að lokinni afhjúpun Astra á sýningunni. „Nú þegar hafa um 30 þúsund pantanir borist þó að opinber markaðssetning nýs Astra sé ekki fyrr en 10. október“. Astra er hlaðinn eftirsóknarverðum nýjungum sem margar hverjar hafa verið einskorðaðar við lúxusbíla. Hér vekja mesta athygli ný sæti með nuddi, hitakerfi og loftræstingu, sem þróuð hafa verið af tæknimönnum Opel sem og Opel On-Star upplýsingakerfið sem setur ný viðmið í bílaheiminum. Einnig má nefna nýtt háþróað LED matrix framljósakerfi sem hingað til hefur aðeins verið fáanlegt í dýrustu lúxusbílum á markaðnum. Ný Astra verður fáanlegur hjá Bílabúð Benna fljótlega eftir áramót. Framlag Opel á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt hefur vakið mikla athygli með frumsýningunni á elleftu kynslóðinni af Opel Astra. Mikill metnaður liggur að baki þessu verkefni, enda er bílgerðinni ætlað að skrifa nýjan kafla í sögu Opel á heimsvísu. „Við áttum sannarlega von á góðu, en þetta toppar allt,” sagði Dr. Karl-Thomas Neumann, forstjóri Opel í Þýskalandi, í viðtali að lokinni afhjúpun Astra á sýningunni. „Nú þegar hafa um 30 þúsund pantanir borist þó að opinber markaðssetning nýs Astra sé ekki fyrr en 10. október“. Astra er hlaðinn eftirsóknarverðum nýjungum sem margar hverjar hafa verið einskorðaðar við lúxusbíla. Hér vekja mesta athygli ný sæti með nuddi, hitakerfi og loftræstingu, sem þróuð hafa verið af tæknimönnum Opel sem og Opel On-Star upplýsingakerfið sem setur ný viðmið í bílaheiminum. Þá má nefna nýtt háþróað LED matrix framljósakerfi sem hingað til hefur aðeins verið fáanlegt í dýrustu lúxusbílum á markaðnum. Ný Astra verður fáanlegur hjá Bílabúð Benna fljótlega eftir áramót.
Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent