Viðskipti erlent

Stillingin sem Apple notendur vilja kannski slökkva á

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Wi-Fi Assist er ein af nýjum stillingum iOS 9 stýrikerfis Apple. Sú stilling hefur verið að valda usla síðustu daga. Í nýjasta stýrikerfinu kveikist sjálfkrafa á Wi-Fi Assist en stillingin er sögð eyða gagnamagni iPhone notenda, með tilheyrandi kostnaði.

Það sem stillingin gerir er að greina þegar þráðlaust net er ef til vill með lítinn styrk eða slíkt og skiptir sjálfkrafa yfir á 3G eða 4G, jafnvel þó notendur séu heima hjá sér.

Hér má slökkva á Wi-Fi Assist.Vísir/Tryggvi
Margir taka ekki eftir þessu og nota símann ef til vill til að sækja mikið gagnamagn. Það getur kostað skildinginn fyrir suma.

Þó einhverjir kunni eflaust að meta þetta, þá er ekki ólíklegt að margir muni finna fyrir því gagnvart gagnamagni og símreikningi þar af leiðandi.

Ef notendur iOS 9 hafa orðið varir við að gagnamagn þeirra hefur verið notað upp á óskiljanlegan hátt og vilja slökkva á Wi-Fi Assist er það gert svona: Farið er í settings og þaðan í mobile data. Neðst á þeirri valmynd er hægt að slökkva á stillingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×