Fótbolti

Glæsimark Florenzi tryggði Roma stig gegn Evrópumeisturunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Barcelona tókst ekki að vinna Roma þegar liðin mættust í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur 1-1.

Þetta var 100. Meistaradeildarleikur Lionel Messi en argentínski snillingurinn komst ekki á blað í þessum tímamótaleik.

Luís Suárez kom Evrópumeisturunum yfir á 21. mínútu en 10 mínútum síðar jafnaði Allesandro Florenzi metin með stórkostlegu marki.

Ítalski bakvörðurinn lyfti þá boltanum glæsilega yfir Marc-André ter Stegen, markvörð Barcelona, frá hægri kanti og boltinn fór í stöngina og inn. Sannarlega glæsilegt mark.

Fleiri urðu mörkin ekki og liðin sættust á skiptan hlut.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×