Viðskipti erlent

Hækkun á kínverskum hlutabréfamörkuðum annan daginn í röð

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Shanghai Composite vísitalan hækkaði um rúm fimm prósent í morgun.
Shanghai Composite vísitalan hækkaði um rúm fimm prósent í morgun. Vísir/AFP
Hlutabréfaverð á kínverskum mörkuðum hélt áfram að hækka í morgun eftir talsverðar hækkanir í gær. Vísitalan í Shanghai hækkaði í morgun um 5,16 prósent.

Hækkanirnar koma í kjölfar umfangsmikilla og strangra aðgerða sem kínversk stjórnvöld hafa gripið til eftir að hrun var á mörkuðum á meginlandi Kína í byrjun mánaðarins.

Hlutabréfaverð féll um þriðjung í hruninu, en virðist nú vera að ná sér að nýju. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×