Opel ræðst að útblæstri dísilvéla Finnur Thorlacius skrifar 8. júlí 2015 10:15 Þróaðar dísilvélar frá Opel.
Sókn Opel á heimsmarkaði byggist á öflugu þróunarstarfi. Mjög athyglisverðar nýjungar frá Opel munu líta dagsins ljós á bílamarkaðnum, jafnt og þétt, til ársins 2018, í formi 27 nýrra bílgerða og 17 nýrra véla. Einar markverðustu nýjungarnar felast í þróun dísilvélanna. Nú þegar skarta Opel bílarnir einum þróuðustu dísilvélum heims og með tilkomu nýju tveggja lítra CDTI vélarinnar, sem kynnt var fyrri hluta ársins 2015, má segja að ný kynslóð af hljóðlátari og umhverfisvænni dísilvélum verði komin í Opel línuna, allt frá Corsa til Insignia. Nýjar og nettar 1,3 lítra og 1,6 lítra vélar, sem og stærri 2,0 lítra vél hafa af stórum hluta til verið þróaðar með eiginleika sem byggja á AdBlue kerfinu, og snýst í grunninn um hæfileikann til að eyða sótflögum í útblæstri betur en áður hefur þekkst. Þessar byltingarkenndu dísilvélar mæta ströngustu Euro 6 útblástursstöðlum. Ökumenn munu njóta þeirra að fullu með góðri samvisku því að í þeim sameinast kraftur, akstursánægja, sparneytni og ábyrgð í umhverfismálum. Útblásturinn verður á pari við bensínvélarnar. Með tilkomu þessarar nýju kynslóðar af dísilvélum frá Opel er hár útblástur mengandi efna nánast úr sögunni.
Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent