Golf

Bestu kylfingar heims ekki sáttir við bandaríska golfsambandið eftir US Open

Ian Poulter var ekki sáttur um helgina.
Ian Poulter var ekki sáttur um helgina. Getty
Englendingurinn Ian Poulter er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum en hann lætur bandaríska golfsambandið heyra það í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram.

Mikið hefur verið rætt um ástanda flatanna á Chambers Bay vellinum þar sem US Open fór fram um helgina en Jordan Spieth sigraði á mótinu eftir æsispennandi lokahring.

Poulter birtir mynd af flöt á Chambers Bay í færslunni sem er afar löng en þar biður hann um afsökunarbeiðni frá bandaríska golfsambandinu vegna þess hversu hræðilegar flatirnar í mótinu voru.

„Ég er ekki að reyna að vera bitur og ég tek það fram að golfvöllurinn var í fínu standi en ef þetta hefði verið venjulegt mót á PGA-mótaröðinni þá hefðu margir þátttakendur pakkað saman á miðvikudeginum og hætt við að spila og farið heim. Flatirnar voru svo slæmar að ég hef ekki séð annað eins á öllum mínum keppnisferli. Bandaríska golfsambandið ætti að skammast sín fyrir hvað þeir gerðu um helgina.“

Margir þátttakendur í mótinu hafa tekið undir með Poulter og gagnrýnt flatirnar, meðal annars Billy Horschel, Chris Kirk, Camilo Villegas, Henrik Stenson, Sergio Garcia og Rory McIlroy en stærsta gagnrýnin kom frá goðsögninni Gary Player sem fór hamförum í sjónvarpsviðtali hjá Golf Channel og sakaði bandaríska golfsambandið hreinlega um að skemma mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×