Mæta með allt nýtt á heimilið Stefán Árni Pálsson skrifar 23. júní 2015 14:00 Hugi Halldórsson, framleiðandi hjá Stórveldinu. vísir/hag
Framleiðslufyrirtækið Stórveldið stendur fyrir sjónvarpsþætti þar sem öll fjölskyldan er þátttakandi. Þátturinn gengur út á að vinna sér inn nýja innanstokksmuni, allt frá nýrri brauðrist upp í nýtt sófasett eða frí í sólina fyrir alla fjölskylduna. „Við erum að leita að hressum og skemmtilegum fjölskyldum til að taka þátt í þessu með okkur," segir Hugi Halldórsson, framleiðandi hjá Stórveldinu. „Það sem gerir þetta spennandi og öðruvísi er að þátturinn gerist heima í stofu hjá fólki. Ef td. sjónvarpið og/eða ísskápurinn er kominn til ára sinna mætum við með allt nýtt og það eina sem fjölskyldan þarf að gera er að svara í sameiningu nokkrum spurningum. Fyrir hvert rétt svar fær fjölskyldan að skipta út gömlum hlut í staðinn fyrir nýjan. Foreldrarnir vita kannski ekki hvert millinafn Justin Bieber er, en 12 ára fjölskyldumeðlimur veit það kannski. Ef hinsvegar enginn veit svarið má fjölskyldan nýta sér einn af valmöguleikum á borð við að spyrja nágranna sína.“ Spurningarnar henta fyrir alla aldurshópa og verður þetta að teljast kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að endurnýja húskosti heimilis síns. Áhugasamar fjölskyldur eru beðnar að senda tölvupóst á storveldid@storveldid.is með upplýsingum um fjölda fjölskyldumeðlima og aldur þeirra, ásamt öðru sem fjölskyldan vill koma á framfæri. „Við hvetjum sérstaklega fjölskyldur sem hafa áhuga á spilum og öðrum skemmtilegum samkvæmisleikjum til að senda okkur línu,“ segir Hugi að lokum.
Justin Bieber á Íslandi Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Sjá meira