Viðskipti erlent

Breska ríkið sagt ætla að selja Channel 4 fyrir milljarð punda

ingvar haraldsson skrifar
Höfuðstöðvar Channel 4 í London.
Höfuðstöðvar Channel 4 í London. vísir/getty
Breska ríkið er sagt stefna að því að selja sjónvarpsstöðina Channel 4 fyrir einn milljarð punda eða ríflega 200 milljarða íslenskra króna. Þessu er haldið fram í The Daily Mail.

Sjónvarpsstöðin er í eigu ríkisins en fjármögnuð með auglýsingatekjum. Fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar til að einkavæða sjónvarpsstöðina frá því henni var komið á fót árið 1982.

Frjálslyndir demókratar lögðust gegn hugmyndum Íhaldsflokksins um að einkvæða stöðina í tíð síðustu ríkisstjórnar en nú er Íhaldsflokkurinn einn í ríkisstjórn.

Neville-Rolfe, aðstoðarráðmenntamálaráðherra Bretlands, segir þó ekki á dagskrá „eins og er“ að selja Channel 4 samkvæmt því sem fram kemur í The Guardian.



Í skriflegu svari til breska þingsins
segir hún að verið sé að bíða eftir skýrslu Ofcom, sem hefur yfirumsjón með sjónvarpsútsendingum á Bretlandi, áður en frekari ákvarðanir verði teknar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×