Golf

Ólafía og Valdís náðu sínum besta árangri frá upphafi á LETAS

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafía Þórunn í eldlínunni.
Ólafía Þórunn í eldlínunni. vísir/daníel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni náðum frábærum árangri á ASGI meistaramótinu sem lauk í Sviss í dag, en mótið er hluti af LETAS mótaröðinni.

Mótið var hluti af LETAS atvinnumótaröðinni í Evrópu sem er næst sterkasta atvinnugolfmótaröð kvenna á eftir sjálfri LET Evrópumótaröðinni.

Ólafía endaði í fimmta sæti á -5 höggum samtals, en hún náði sér ekki á strik á lokahringnum þar sem hún lék á 75 höggum. Hún var efst fyrir lokahringinn.

Valdís Þóra lenti í sjöunda til níunda sæti, en hún lék lokahringinn á 70 höggum og samtals -3.

Þetta er besti árangur þeirra beggja á tímabilinu og besti árangurinn á þessari sterku atvinnumótaröð. Stigahæstu keppendurnir á LETAS vinna sér inn keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni.

Þetta er þriðja mót keppnistímabilsins en íslensku kylfingarnir ætla að leggja áherslu á LET Access mótaröðina á þessu tímabili. Þetta er í fyrsta sinn sem tvær íslenskar konur eru með keppnisrétt á þessari mótaröð en Valdís Þóra er að hefja sitt annað tímabil á LET Access mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×