Ítreka ábendingu um niðurlagningu bílanefndar Samúel Karl Ólason skrifar 10. apríl 2015 17:03 Bílanefnd ríkisins hefur umsjón með bifreiðamálum ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja ríkisins. Vísir/Anton
Ríkisendurskoðun ítrekaði í dag tillögu sína frá árinu 2012 að bílanefnd ríkisins yrði lögð niður. Bent var á að starfsemi bílanefndar væri á skjön við ábyrgð forstöðumanna á rekstri stofnanna og hún væri óþarfur milliliður í nútíma stjórnsýslu. Bílanefnd ríkisins hefur umsjón með bifreiðamálum ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja ríkisins, samkvæmt tilkynningu á vef Ríkisendurskoðunar. Ef slíkir aðilar hyggjast kaupa eða taka bifreiðar á rekstrarleigu þurfa þeir að fá samþykki nefndarinnar. Einnig þarf hún að samþykkja alla aksturssamninga sem gerðir eru við ríkisstarfsmenn. Þá framfylgir nefndin reglum um merkingar ríkisbifreiða og reglum um innkaup og endurnýjun ráðherrabíla. Auk þess að leggja til að nefndin yrði lögð niður lagði Ríkisendurskoðun til að reglugerð um starfsemi hennar yrði numin úr gildi. „Kaup eða rekstrarleiga stofnana á bifreiðum ættu að vera samkvæmt svokölluðum rammasamningum Ríkiskaupa,“ segir í tilkynningunni. Ítrekun Ríkisendurskoðunar kom fram í nýrri eftirfylgniskýrslu, en þar kemur einnig fram að fjármálaráðuneytið var ósammála tillögunni. Ráðuneytið telur hugsanlegt að fyrirkomulagi bifreiðamála ríkisins verði breytt í kjölfar fyrirhugaðrar breytingar endurskoðunar á lögum um opinber innkaup og gildistöku laga um opinber fjármál. Árið 2012 lagði Ríkisendurskoðun einnig til að samstarfsnefnd sem tekur afstöðu til umsókna um niðurfellingu vörugjalds á ökutækjum björgunarsveita yrði lögð niður. Eðlilegt væri að Tollstjóri tæki ákvarðanir í þessu efni. Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að fjármála- og efnahagsráðuneytið telji ekkert því til fyrirstöðu að endurskoða fyrirkomulag á afgreiðslu umræddra umsókna komi til þess að bílanefnd verði lögð niður. Meðan hún sé starfandi sé hins vegar rétt að fyrirkomulagið verði óbreytt.
Mest lesið Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Sjá meira