Real Madrid skoraði níu gegn Granada | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2015 00:01
Real Madrid valtaði yfir gesti sína frá Granada í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í morgun en Madrídingar gerðu sér lítið fyrir og skoruðu níu mörk gegn einu gestanna.Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan. Cristiano Ronaldo fór hamförum í leiknum og skoraði fimm mörk, þar af komu þrjú á átta mínútna kafla í fyrri hálfleik. Ronaldo hefur nú skorað 28 þrennur í búningi Real Madrid, jafn margar og Alfredo Di Stéfano gerði á sínum tíma. Ronaldo er alls kominn með 36 mörk í deildinni í vetur, fjórum mörkum meira en Lionel Messi hjá Barcelona. Karim Benzema skoraði tvö mörk og Gareth Bale eitt, auk þess sem Diego Mainz setti boltann í eigið mark. Robert Ibanez skoraði eina mark Granada þegar hann minnkaði muninn í 7-1 á 74. mínútu. Bale átti einnig tvær stoðsendingar sem og James Rodríguez sem sneri aftur í lið Real Madrid í dag eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla. Með sigrinum minnkaði Real Madrid forystu Barcelona á toppi deildarinnar niður í eitt stig. Börsungar geta þó endurheimt fjögurra stiga forystu með sigri á Celta Vigo í kvöld.
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira