Suzuki kynnir tvo nýja í Genf Finnur Thorlacius skrifar 6. mars 2015 12:12 Suzuki iK-2 Concept.
Suzuki bílaframleiðandanum japanska gengur vel þessa dagana og aldrei þessu vant streyma fjöldi nýrra bíla frá fyrirtækinu. Nýlega var kynntur nýr Suzuki Vitara fyrir blaðamönnum í Portúgal og styttast fer í komu bílsins til Íslands. Ekki lætur þó Suzuki þar við sitja, því á bílasýningunni í Genf, sem nú stendur yfir, hefur Suzuki svift hulinni af tveimur glænýjum tilraunabílum. Þeir heita iK-2 Concept og iM-4 Concept og eru báðir af smærri gerðinni, eins og títt er um bíla Suzuki. Sá þeirra sem er lægri til þaksins, iK-2 Concept, er nettur stallbakur sem fara mun örugglega í framleiðslu og kemur víst á markað á næsta ári. Undirvagn bílsins er glænýr og er hann víst stífari og léttari en Suzuki hefur áður boðið. Þessi bíll verður mjög sparneytinn og fær 1,0 lítra og þriggja strokka vél með forþjöppu. Hann verður einnig í boði með rafmótorum sem hjálpa vélinni og þannig búinn verður hann algjör sparigrís. Sá háfættari, iM-4 Concept, er byggður á sama undirvagni og hinn en hann stendu samt mun hærra á vegi. Þessi bíll gæti verið arftaki Suzuki Jimny, sem notið hefur mikilla vinsælda lengi. Þessi bíll mun fá 1,2 lítra vél og rafmótora og mun því eins og hinn eyða litlu eldsneyti. Suzuki iM-4 Concept.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent