Tilnefningar til bíls ársins Finnur Thorlacius skrifar 17. febrúar 2015 10:06 Citroën C4 Cactus er einn þeirra 10 bíla sem tilnefndur er sem bíll ársins.
Á hverju ári tilnefnir fjölþjóðleg nefnd bílablaðamanna bíl ársins (World Car of the Year) sem tilkynnt er um á bílasýningunni í New York í byrjun apríl. Áður en að því kemur velur dómnefndin þá 10 bíla sem til greina koma. Í gær varð ljóst hvaða bílar það eru. Eru það bílarnir BMW 2 Active Tourer, Volkswagen Passat, Citroën C4 Cactus, Ford Mustang, Hyundai Genesis, Jeep Renegade, Mazda2, Mercedes Benz C-Class, Mini Hardtop og Nissan Qashqai. Nefndin velur einnig lúxusbíl ársins og í úrslit þar eru bílarnir BMW i8 og X6, Mercedes S-Class Coupe, Lexus NX og RC, Range Rover Autobiography Black LWB, Cadillac ATS Coupe og Escalade, Kia K900 og Lincoln MKC. Ennfremur velur nefndin sportbíl ársins og þar eru komnir í úrslit bílarnir Audi S1, S3 og TT, Bentley Continental GT Speed, BMW M3/M4, Chevrolet Corvette Z06, Dodge Challenger SRT Hellcat, Jaguar F-Type R Coupe, Lexus RC F og Mercedes-AMG GT. Í fjórða lagi velur nefndin "græna" bíl ársins og þar eru komnir í úrslit bílarnir Volvo XC90 T8, Volkswagen Golf GTE, Kia Soul EV, BMW i8 og Hyundai Tucson Fuel Cell. Að síðustu velur þessi nefnd hönnun ársins og þar koma til greina bílarnir Porsche Macan, Mercedes Benz C-Class, BMW 2 Active Tourer, Citroën C4 Cactus og Volvo XC90.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent