Lítill pallbíll frá Hyundai Finnur Thorlacius skrifar 13. janúar 2015 10:13 Hyundai Santa Cruz.
Hyundai kynnir nú þennan litla pallbíl á bílasýningunni í Detroit, en hann er eins og samsuðu jepplings og pallbíls og hefur fengið nafnið Santa Cruz. Þessi bíll er ekki, líkt og aðrir pallbílar, stór, eyðslufrekur né dýr. Líklega er því þarna kominn einn ódýrast pallbíll sem fást mun. Hyundai hefur ekki staðfest að þessi bíll verði framleiddur og því er kynning hans sennilega til þess ætluð að fá viðbrögð við honum áður en ákvörðun verður tekin. Hyundai segir hinsvegar að kannanir sem fyrirtækið hefur gert bendi til þess að mikill markaður sé fyrir svona bíl, ekki síst í Bandaríkjunum. Hann sé hentugur bíll fyrir allt aðra kaupendur en hingað til hafa valið sér pallbíla, fólk sem stundi útivist og taki gjarnan með sér búnað, svo sem hjól eða brimbretti. Hyundai segir að meðalverð á pallbílum nú sé um 38.000 dollarar og það háa verð hindri það að margir fái sér pallbíl þó þörfin fyrir slíkan bíl sé til staðar. Það verði leyst með þessum bíl sem gæti orðið svo ódýr sem á 22.000 dollara. Hann verður með 2,0 lítra túrbínudrifna dísilvél sem skilar 190 hestöflum til allra hjólanna. Hann mun eyða milli 7 og 8 lítrum á hverja hundrað kílómetra og því verður hann mun hagkvæmari í rekstri en flestir aðrir pallbílar. Svona bílar eins og Hyundai Santa Cruz hafa áður verið framleiddir og ekki selst vel. Dæmi um það eru Subaru Brat frá níunda áratug síðustu aldar og Subaru Baja bíllinn sem kom fram uppúr síðustu aldamótum. Það gæti þó hjálpað til við sölu svona bíls að pallbílamarkaðurinn í Bandaríkjunum er sá sem vex hraðast um þessar mundir. Hyundai Santa Cruz séður að framan.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent