Jólaguðspjallið rifjast upp við opnun pakka Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 12. desember 2014 16:30 Útfærslan á jólaguðspjallinu er sérstök,” segir Helga. „
Brúður eru í aðalhlutverkum í sýningunni og svo er mikil áhersla lögð á þátttöku áhorfenda,“ segir Helga Arnalds um Jólaguðspjallið sem sýnt verður í Gerðubergssafni á sunnudaginn klukkan 14. Helga stýrir leikhúsinu 10 fingur er stendur að sýningunni. Útfærslan á jólaguðspjallinu er sérstök eins og Helga lýsir. „Leiðindaskjóða, litla systir jólasveinanna, hefur verið fengin til að skemmta krökkunum. Hún er alveg jafn rugluð og þau á hamaganginum kringum jólin og dettur ekkert annað í hug en að lesa upp úr Biblíunni þeim til skemmtunar. Hana rekur þó fljótlega í vörðurnar því hún skilur hvorki upp né niður í þeim torskilda texta.“ Þar kemur í leikritinu að Leiðindaskjóða rekst á nokkra jólapakka, að sögn Helgu. „Þegar hún gægist ofan í pakkana finnur hún alls kyns dýr og brúður sem reynast vera persónurnar úr jólaguðspjallinu. Eftir því sem hún opnar fleiri pakka fer jólaguðspjallið að rifjast upp fyrir henni.“
Jólafréttir Menning Mest lesið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira