Með franska demanta í farteskinu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. desember 2014 10:45 Sigrún ætlar að taka glæsiaríur í Norðurljósasalnum. Vísir/GVA „
Ég ætla að taka nokkrar fallegar aríur úr frönskum óperubókmenntum,“ segir Sigrún Pálmadóttir sópransöngkona um efni hádegistónleika Íslensku óperunnar í dag. Hún nefnir fjallaaríu Micaëlu úr Carmen eftir Bizet, aríu Amors úr Orfeus og Evridís eftir Gluck og skartgripaaríu Marguerite úr Faust eftir Gounod og bætir við að svo sem eitt jólalag gæti hæglega slæðst með. Sigrún sló eftirminnilega í gegn í hlutverki Víólettu Valéry í La traviata hjá Íslensku óperunni vorið 2008, og hlaut Grímuna í flokknum Söngkona ársins fyrir hlutverkið. Hún er búsett á Ísafirði og kennir þar meðal annars 17 nemendum söng en var lent í borginni með þessa frönsku demanta í farteskinu þegar hringt var í hana. Það er Antonia Hevesi píanóleikari sem spilar undir hjá Sigrúnu á hádegistónleikunum í Norðurljósum í Hörpu í dag klukkan 12.15. Aðgangur er ókeypis.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira