Sýning á sögu skjaldarmerkis Íslands Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 5. desember 2014 08:30 Andrés Úlfur Helguson með verk langafa síns. Vísir/Valli
Sýningin Tryggvi Magnússon og skjaldarmerkið var opnuð þann 1. desember á Landsbókasafninu í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá því að Ísland varð lýðveldi.Landsbókasafnið Háskólabókasafn stendur fyrir sýningunni ásamt langafabarni Tryggva, Andrési Úlf Helgusyni. „Hann langafi var myndlistamaður eða eins og Goddur sagði þá var hann líklega fyrsti grafíski hönnuðurinn á Íslandi sem starfaði alfarið sem slíkur,“ segir Andrés, en teikningarnar af skjaldarmerkjunum eru einungis lítið brot af verkum Tryggva. „Amma mín, Þórdís Tryggvadóttir, varðveitti allt hans æviverk í myndum og riti og ætli teikningarnar séu ekki um 3.000 talsins. Á þessu lá hún eins og ormur á gulli til fjörutíu ára og enginn fékk að róta í þessu. Ég gafst hins vegar ekki upp og fékk við og við að skoða myndirnar. Það fór svo að lokum þannig að fjölskyldan ákvað í sameiningu að gefa Landsbókasafninu verk hans,“ segir Andrés, en þar voru verkin hreinsuð og númerið og voru verkin færð Landsbókasafninu og sett í forvörslu og skráð. Þessi sýning verður líklega sú fyrsta af mörgum en Tryggvi á stórbrotinn feril að baki. Hann var annar tveggja teiknara Rafskinnu 1933-1943, myndskreytti fjölda barnabóka og þjóðsagna ásamt því að vera aðalhönnuður og teiknari Alþingishátíðarinnar 1930. Á sýningunni má sjá margar tillögur Tryggva og annarra teiknara að lýðveldisskjaldarmerki auk eldri skjaldarmerkja Íslands. „Það er áhugavert að sjá þróunina og á tímabili voru hugmyndir um að breyta merkinu í fálkamerki. Fyrir stofnun Lýðveldisins 1944 voru helstu myndlistarmenn þjóðarinnar fengnir til þess að gera tillögur að nýju skjaldarmerki, svokölluðu lýðveldismerki. Teikning Tryggva var samþykkt og opinberuð á ríkisráðsfundi 17. júní 1944 sem skjaldarmerki lýðveldisins Íslands. Kórónan frá merkinu 1919 var felld í burtu af merkinu og undirstöðunni breytt. „Að auki var landvættunumí merkinu breytt, sem er skemmtilegt því langafi var byrjaður að teikna landvættirnar að minnsta kosti 20 árum áður,“ segir Andrés, sem nú vinnur að gerð ævisögu um langafa sinn. Hann biðlar því til þeirra sem einhverjar upplýsingar hafa um langafa hans eða þeirra sem vantar upplýsingar um hann og verk hans að hafa samband við sig og senda tölvupóst á netfangið skjaldarmerkid@gmail.com.
Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira