Grænmeti sæta Berglind Pétursdóttir skrifar 10. nóvember 2014 06:30 Ég horfði nýlega á myndband um grimmilega meðferð á litlum kjúllum og gerðist í kjölfarið æsipólitísk grænmetisæta. Ég veit að fólki leiðist þegar fólk talar um að það sé grænmetisætur eða æfi cross-fit svo ég hef reynt af mesta megni að ræða þetta við sem fæsta og skrifa helst ekki um það í blöðin nema þegar í harðbakkann slær. Nú er ég alveg að niðurlotum komin eftir að standa í kremju á Knife-tónleikum alla helgina svo að hér kemur þetta og ég vona að þið takið ekki illa í, grænmeti er nefnilega frábært. Þessar pólitísku aðgerðir eru búnar að ganga sérstaklega vel fyrir sig, fyrir utan þegar ég sporðrenndi óvart skinkusneið sem var búin að koma sér vel fyrir innan veggja rúnstykkis og var svo bragðlaus að ég tók ekki eftir henni fyrr en síðasta sesamfræið hafði verið nagað. Þess utan hef ég ekki smakkað kjötmeti og sakna þess mjög lítið. Ég hélt í fyrstu að mér myndi leiðast hljóðið af braki gulrótar undir tönn til lengdar þar sem kjöt hefur verið á boðstólum heimilisins nær daglega í mjög langan tíma. Þannig er mál með vexti að jafngóði helmingurinn er mikill tilboðs-maður og veit ekkert betra en að gera góð kaup á fillet-i. Nú situr hann einn að afsláttarkjötinu meðan hin róttæka grænmetisæta prófar sig áfram í kínóa-suðu og gleypir í sig heilu pokana af lífrænum gjöfum jarðar. Ég er sannarlega að læra að lifa upp á nýtt. Það er alveg merkilegt hversu svipaður risavaxinn sveppur er hamborgara, sé hann bara settur milli tveggja brauða og úðaður með sósu. Það leynast lausnir víða fyrir grænmetisætur sem vilja ekki bara borða salat og sérstaklega er gott að finna sálufélaga sína á netinu sem hafa stofnað spjallhóp um sveittan grænmetismat. Hvílíkt himnaríki. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Berglind Pétursdóttir Mest lesið 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal Skoðun
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun