Tónlist

Vill fá innblástur fyrir nýja sinfóníu

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Vill halda áfram - Tim er ekki orðinn þreyttur á ferðalögum.
Vill halda áfram - Tim er ekki orðinn þreyttur á ferðalögum.
„Bærinn er engu líkur, ég hlakka mikið til að koma aftur,“ segir bresk-kanadíski tónlistarmaðurinn Tim Crabtree, einnig þekktur sem Paper Beat Scissors. Hann er á leiðinni til landsins í annað sinn en hann kemur fram á tónleikum á Cafe Rosenberg á föstudaginn.

„Ég er að reyna að læra meiri íslensku. „Þú ert fallegur,“ er það eina sem ég kann í augnablikinu,“ segir Tim og hlær.

Tim er Breti sem búið hefur í Halifax í Kanada undanfarinn áratug. Tim segist spila dýnamíska tónlist og leikur sér mikið með tónstyrkinn en þetta er í grunninn indí-þjóðlagatónlist. Hann er í kreðsunni í kringum hljómsveitina Arcade Fire en Jeremy Gara, trommari sveitarinnar, hljóðblandaði seinustu plötu Tims.

Ný plata frá Paper Beat Scissors kemur út í apríl á næsta ári en Tim mun spila ný lög af plötunni í bland við gamalt efni.

Að sögn Tims mun hann nýta dvöl sína á landinu til að vinna í tónlist fyrir sinfóníutónleika í Halifax þar sem hann mun semja útsetningarnar. „Mig langar að fá innblástur á meðan ég er á Íslandi,“ segir hann.

Tónleikarnir á Rósenberg verða seinasti áfanginn á Evróputúr hans þar sem hann spilaði á 30 stöðum víðs vegar um Evrópu en síðustu tónleikar hans voru haldnir í grískri rétttrúnaðarkirkju í Augsburg í Þýskalandi og var uppselt. „Þetta hefur verið ótrúlegt tónleikaferðalag. Ég væri samt til í að halda áfram,“ segir Tim.

Tónleikarnir á föstudag hefjast klukkan 21.00 og kostar 2.000 krónur inn. Ásamt Paper Beat Scissors koma fram Sísí Ey og Svavar Knútur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×