Þetta er einyrkjastarf Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 30. september 2014 12:00 "Ég hef unnið ýmis störf í gegnum tíðina og finnst yfirleitt gaman að vinna,“ segir Paul og kveðst hafa áhuga á þeirri tækni sem flýti fyrir þýðendum. Fréttablaðið/Ernir „
Það eru hundrað ár frá því starfsheiti okkar var fært í lög,“ segir Paul Richardson, formaður Félags löggiltra skjalaþýðenda og dómtúlka. Á málþingi í Iðnó síðdegis í dag ætlar hann að lesa úr þingræðum frá 1913 og 1914 þegar Bjarni frá Vogi lagði fram þingsályktunartillögu um löggildingu þýðinga og dómtúlkunar. „Menn létu ýmislegt skemmtilegt út úr sér á þingi þá, ekki síður en nú,“ segir hann glaðlega. Um sjötíu manns eru í félaginu og Paul segir samkomu vegna hundrað ára tímamótanna hafa verið vel sótta. Stjórnin hittist af og til og aðalfundur er einu sinni ári. „Á aðalfundum ætlum við að gera allt mögulegt en svo eru allir á kafi í vinnu og minna verður oft úr,“ viðurkennir hann. Sjálfur situr Paul við þýðingar á eigin skrifstofu í bílskúr á Grenimelnum og kveðst mest þýða dómsskjöl en líka skjöl um tæknimál í sambandi við fjarskipti. „Ég hef unnið ýmis störf gegnum tíðina og finnst yfirleitt gaman að vinna. En þetta er einyrkjastarf. Verkefnin koma mest gegnum tölvur og maður hittir sjaldnast nokkurn mann í tengslum við starfið svo það er ekki fyrir alla.“ Málþingið í Iðnó er haldið af Bandalagi þýðenda og túlka og auk Pauls halda erindi þau Pétur Gunnarsson rithöfundur og þýðandi, Guðrún Þórhallsdóttir, dósent í íslensku, Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, doktorsnemi í þýðingafræði, og Sigrún Þorgeirsdóttir, ritstjóri hjá Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins. Þingið hefst klukkan 16.30 og aðgangur er ókeypis.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira