Rassatónlist Berglind Pétursdóttir skrifar 29. september 2014 00:00 Ég hlusta stundum á tónlist. Ég er bara þannig gerð. Ég hef gaman af alls konar tónlist og þar sem ég var alin upp af jazz-geggjara er rytminn í mér ríkjandi. Verð bara að dilla mér þið skiljið. Ég fíla því að hlusta á fjöruga tónlist, sérstaklega sé hún flutt af sterkum kvenímyndum. Konum sem taka ekki nei fyrir svar og syngja um að ég þurfi ekki að sætta mig við að maðurinn minn geri þetta og hitt, ég sé mín eigin skáldkona og þar fram eftir götunum. Upp á síðkastið hafa þessar vinkonur mínar margar samið ný lög sem fjalla um rassa. Það er gott og blessað að hafa fjölbreytileikann í fyrirrúmi í texta- og lagasmíðum en nú virðist vera í tísku að vera með stóran rass og búa til tónlist sem fagnar því. Þaðer mjög jákvætt að þessar ungu söngkonur séu jafn sáttar við sinn perulaga vöxt og lögin bera vitni, enda ekki ástæða til annars. Margar þeirra hafa þó orð á því í textum sínum að gefa eigi skít í (e. fuck them) allar grannar tæfur (e. skinny bitches) og þar set ég rassinn í borðið. Semkona með ekki svo stóran rass finnst mér að kynsystur mínar megi endilega fagna alls konar rössum í öllum stærðum og gerðum og syngja líka fagnaðarsöngva um litla rassa og rassa í miðstærð. Gaman væri að ég og hinir smágerðu rassarnir gætum dillað okkur með á dansgólfinu þegar plötusnúðurinn þeytir Nicki Minaj eða J-Lo, Iggy Azealia eða jafnvel Sir Mix-A-Lot í gang. Ekki hef ég heyrt eitt einasta lag tileinkað okkur sem ekki höfum vatnsmelónur í brók og ég er bara frekar miður mín út af því. Þetta er nauðsynleg umræða og ég veit að þið eruð sammála. Ef það á að gefa út rassatónlist á annað borð heimta ég að bossajafnræðis sé gætt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Pétursdóttir Mest lesið Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun