Svona nýtir þú afraksturinn úr berjamó 7. ágúst 2014 10:30
Bláber þykja góður matur og berjatínsla virðist vera að njóta vaxandi vinsælda, þá sérstaklega meðal yngri kynslóða. Ólíkar aðferðir eru notaðar þegar kemur að berjatínslunni. Sumir nota hendurnar einar eða einfaldar berjatínur. Þá eru til nýstárlegri aðferðir líkt og tveggja handa berjatínur. En hvað er hægt að gera við afraksturinn úr berjamó, annað en að búa til sultu og bláberjavín?Hrefna SætranVísir/Stefán„Bláber eru mjög vinsæl á mínu heimili,“ segir Hrefna Rósa Sætran, sjónvarpskokkur og eigandi Grill- og Fiskmarkaðarins. „Börnin mín borða nánast eina öskju daglega og við notum þau í margt.“ Hér að neðan fylgja þrjár sniðugar uppskriftir úr smiðju Hrefnu Sætran sem hægt er að nýta afraksturinn úr berjamó í.11 „Það er til dæmis sniðugt að útbúa svona heimatilbúna bláberjafrostpinna úr bláberjum. Þá blandar maður saman vatni, bláberjum og smá sykri í potti og sýður þar til sykurinn hefur leyst upp. Svo kælir maður vökvann, blandar saman við hann smá sýrðum rjóma og setur í form og frystir.“22 „Ég nota líka oft bláber í salat. Spínat, bláber, balsamikedik og saltaðar möndlur eru mjög góð blanda. Tossað með smá olíu.“33 „Svo er líka æðislegt að gera samloku úr súrdeigsbrauði, setja á hana geitaost, nokkur bláber og grilla hana í samlokugrilli. Smá hunang yfir samlokuna skemmir ekki fyrir.“
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist