Úr 20. aldar tónlistararfi Rússa Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. júlí 2014 11:30 Sigurður Bjarki, Una, Helga Þóra og Þórunn Ósk. Mynd/Kristín Ragna Gunnarsdóttir „
Við ætlum að spila Strengjakvartetta númer 1 ópus 50 eftir Sergei Prokofiev og númer 8 ópus 110 eftir Dmitri Sjostakovitsj. Þeir tilheyra báðir þessum rússneska 20. aldar tónlistararfi. Sjostakovitsj-kvartettinn er líklega þekktasta kvartett tónskáldsins. Prokofiev kvartettinn er ekki eins mikið spilaður en hann er ágætlega aðgengilegur,“ segir Sigurður Bjarki Gunnarsson sellóleikari þegar forvitnast er um tónleikana í Sigurjónssafni annað kvöld. Þessi „við“ sem hann talar um eru saman í Strokkvartettinum Sigga. Auk hans eru það kona hans, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari, og fiðluleikararnir Una Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir sem öll eru líka strengjaleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þau eru að ljúka æfingu fyrir þriðjudagstónleikana heima hjá Sigurði Bjarka og Þórunni Ósk þegar ég hringi og ég heyri í litlu barni á bak við Sigurð Bjarka. „Við erum að pússla saman sumarfríi, barnauppeldi og æfingum. Þess vegna æfðum við nú hér heima núna,“ segir hann léttur. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og með þeim lýkur 26. starfsári sumartónleika Listasafns Sigurjóns Ólafssonar.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira