Opnar sýninguna Mið-baug í gamalli fiskbúð 28. júlí 2014 15:30 Victor Ocares hefur áður sýnt vítt og breitt um landið. Vísir/Arnþór „
Sýningin dregur hugmyndir og innblástur af reynslu minni af því að vera bæði Sílemaður og Íslendingur og dínamíkina þar á milli,“ segir Victor Ocares, sem skoðar rætur sínar í sýningunni Miðbaugur sem var opnuð á laugardaginn. Hann nýtir sér ofhlaðin tákn úr heimi stærðfræðinnar og viðskipta og vísar í eigin sögu sem rás að stærra samhengi. „Ég nota persónulega reynslu mína sem þessa rás að stærra samhengi og leyfði ferlinu að fara með verkin á óvæntar slóðir. Með húmor og sinnuleysi snerta verkin á hnattvæðingu, flugum og glundroðanum,“ segir Victor, léttur í bragði Victor Ocares býr og starfar á Akureyri, en hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2013. Hann hefur tekið þátt í sýningum vítt og breitt um landið. „Sýningin er á þeirri línu sem ég hef verið að vinna áður og er framhald á sýningu sem hét REC,“ útskýrir Victor. „Verkin sjálf eru öll unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu og þar má telja sjö myndverk, tvo skúlptúra og eitt textílverk.“ Sýningin var opnuð eins og fyrr sagði á laugardaginn, klukkan fimm í Gallerí Harbinger, sem er tiltölulega nýstofnað gallerí. Sýning Victors er önnur sýningin sem haldin hefur verið í galleríinu að Freyjugötu 1, þar sem áður var starfrækt fiskbúð um árabil.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira