Lokatónleikar Engla og manna 25. júlí 2014 17:30 Tenórinn Gunnar Guðbjörnsson lýkur tónlistarhátíðinni Englar og menn með tónleikum á laugardag. Visir/Valli
Lokatónleikar Tónlistarhátíðarinnar Englar og menn í Strandarkirkju í Selvogi fara fram á morgun og hefjast klukkan 14. Þar koma fram þau Gunnar Guðbjörnsson tenór og Helga Bryndís Magnúsdóttir orgelleikari undir yfirskriftinni „Heyr mig, lát mig lífið finna“. Hluti dagskrár þeirra verður tileinkaður 150 ára fæðingarafmæli Einars Benediktssonar skálds, sem bjó síðustu æviár sín í Herdísarvík í Selvogi. Á dagskránni eru einnig Kirkjulög Jóns Leifs ásamt tónlist eftir Bach og suðurevrópsk tónskáld. Tónlistarhátíðin Englar og menn hefur staðið yfir á laugardögum í júlímánuði. Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á lifandi og vandaða tónlistarviðburði á hinum sögufræga stað og auðga um leið tónlistarlíf á Suðurlandi. Þema hátíðarinnar er englar og menn, land, trú og saga þar sem íslenska sönglagið ásamt trúarljóðum og klassískum verkum hljómar á um klukkustundarlöngum tónleikum. Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira