Sek leiklesið á Norrænu sviðslistadögunum í Kaupmannahöfn 25. júní 2014 14:00 Hrafnhildur Hagalín. Leikskáldið nýtur vinsælda á Norðurlöndum og hlaut meðal annars bæði Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin og Grímuna 2013 fyrir útvarpsverkið Opið hús. Fréttablaðið/Valli
Leikritið Sek eftir Hrafnhildi Hagalín var leiklesið í Husets Teater á Norrænum sviðslistadögum í Kaupmannahöfn þann 21. júní síðastliðinn. Leikritið var flutt á dönsku í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar og hlaut flutningurinn mikið lof gesta og gagnrýnenda. Verkið er hluti af Norrænu leikskáldalestinni en hún sviðsetur leiklestur á völdum verkum frá Norðurlöndunum í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi og er lestin starfrækt annað hvert ár. Leikskáldalestin mun í framhaldi ferðast um Norðurlöndin en Sek hefur nú þegar verið þýtt á ensku og dönsku. Einnig standa yfir samræður við leikhús á Manhattan í New York um mögulega uppsetningu þar. Sek var frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar í október síðastliðnum og byggir á dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir ábúenda og vinnumanns í Rifshæðarseli á Melrakkasléttu fléttast saman í örlagaríkum ástarþríhyrningi. Með því að styðjast við texta og tilsvör úr dómskjölum frá þessum tíma byggir höfundurinn, Hrafnhildur Hagalín, upp spennandi atburðarás sem kemur áhorfandanum sífellt á óvart. Hrafnhildur Hagalín er eitt af fremstu leikskáldum landsins. Hún hlaut leikskáldaverðlaun Norðurlanda árið 1992 fyrir leikrit sitt Ég er meistarinn ásamt því að hljóta Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin og Grímuna 2013 fyrir útvarpsverkið Opið hús.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira