Viðskipti erlent

Litháen verður nítjánda evruríkið

Ingvar Haraldsson skrifar
Olli Rehn segir upptöku evru í Litháen sýna styrk evrunnar.
Olli Rehn segir upptöku evru í Litháen sýna styrk evrunnar. Vísir/AP
Evrópusambandið tilkynnti í gær að Litháen uppfyllti öll skilyrði til upptöku evru.

Evrópusambandið mun líklega tilkynna formlega í næsta mánuði að Litháen fái að taka upp evru 1. janúar 2015.

Algirdas Butkevicius, forsætisráðherra Litháens, segir að upptaka evru væri mikilvægt skref fyrir efnahag landsins og pólitíska stöðu þess. Hinn nýi gjaldmiðill ætti eftir að bæta lífskjör og auka hagvöxt í Litháen. Að auki myndi Litháum bjóðast lán á betri kjörum en áður.

Litháenskir andstæðingar Evrópusambandsins hafa krafist þess að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um upptöku evru. Þeirri beiðni hafa stjórnvöld hafnað.

Olli Rehn, yfirmaður peningamála hjá sambandinu, benti á að innganga Litháens í evrusamstarfið sýndi hve sterkt evran stæði þrátt fyrir ólgusjó síðastliðinna ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×