Fjögur hlutu Nýræktarstyrki 2014 28. maí 2014 11:00 Nýir höfundar. Atli Sigþórsson, Guðrún Inga Ragnarsdóttir, Sverrir Norland og Ugla Egilsdóttir. Vísir/Vilhelm
Miðstöð íslenskra bókmennta veitti í gær fjórum nýjum höfundum Nýræktarstyrki til útgáfu á verkum þeirra. Þetta er í sjöunda skiptið sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað. Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Styrkjunum er ætlað að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda og er þar átt við skáldverk í víðri merkingu þess orðs, sögur, ljóð, leikrit, eða eitthvað allt annað. Í ár barst 31 umsókn um Nýræktarstyrki frá 24 aðilum. Verkin sem sótt var um Nýræktarstyrk fyrir eru af ýmsum toga s.s. ljóð, barnaleikrit, smásögur, skáldsögur og esseyjur. Nýræktarstyrki hljóta að þessu sinni eftirfarandi verk og höfundar: Stálskip, nokkur ævintýri eftir Atla Sigþórsson, Plan B, skáldsaga eftir Guðrúnu Ingu Ragnarsdóttur, Kvíðasnillingarnir, skáldsaga eftir Sverri Norland, og Úlrika Jasmín, skáldsaga eftir Uglu Egilsdóttur. Á meðal verka og höfunda sem hlotið hafa Nýræktarstyrki síðustu ár eru barnabókin Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, skáldsagan Sláttur eftir Hildi Knútsdóttur, ljóðabókin Á milli okkar allt eftir Heiðrúnu Ólafsdóttur og smásagnasafnið Eldhafið yfir okkur eftir Dag Hjartarson.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira