Alls konar djöfulgangur og læti Ugla Egilsdóttir skrifar 7. mars 2014 10:30 Vilborg Ólafsdóttir, Eva Rún Snorradóttir og Eva Björk Kaaber eru í Kviss Búmm Bang. Vísir/Stefán „
Allir miðarnir seldust upp á einni viku,“ segir Eva Björk Kaaber, ein listakonan í leikhópnum Kviss Búmm Bang, sem setur upp sýninguna Djöfulgang í mars. „Reyndar eru þetta ekki nema 28 miðar í heildina, en það er samt nokkuð gott að selja alla miðana. Ekki síst þegar maður lítur til þess að hver miði kostar átta þúsund krónur, og leiksýningin tekur sex klukkutíma. Svo gengst fólk við því að taka þátt í alls konar djöfulgangi og látum með kaupum á þessum miðum,“ segir Eva Björk. Sýningar á Djöfulgangi eru fjórar, og á hverja sýningu komast sjö gestir. Djöfulgangur er þátttökuleiksýning sem hefst á BSÍ, en þaðan er haldið í óvissuferð með viðkomu á Reykjanesskaga. Gestir fá snjógalla, vasaljós og handrit til að fylgja. „Þátttakendur verða til í að fara út í auðnina og mæta sjálfum sér. Við vissum alveg að í samfélaginu væri fólk sem væri tilbúið til þess,“ segir Eva. Það kom henni ekki á óvart að miðarnir seldust upp. „Það er alls konar fólk sem hefur á áhuga á því að sjá alls konar leikhús,“ segir Eva Björk. Kviss Búmm Bang hefur fengið Grímutilnefningu, og hlaut frumleikaviðurkenningu frá Stígamótum fyrir framlag til samfélagsbreytinga.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira