Skepna flytur gjörning í glugga 1. mars 2014 13:00 Guðlaug Mía Eyþórsdóttir er myndlistarmaður og einn stofnenda Kunstchlager. MYND/Úr einkasafni
Í dag opnar Guðlaug Mía Eyþórsdóttir sýninguna Street Performance í Wind and Weather Gallery á Hverfisgötu 37 auk þess sem hún, ásamt öðrum, gefur út bókina Vísnabók með CD, en í henni má finna ljóð, lög og upplestra myndlistarmannanna Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur, Guðlaugar sjálfrar, Helga Þórssonar og Sindra Leifssonar. Útgáfuteiti bókarinnar verður haldið klukkan 20.00 í Kunstschlager, Rauðarárstíg 1. „Sýningin í Wind and Weather Gallery er önnur einkasýning mín. Þar verður skepna sem er með gjörning fyrir vegfarendur. Ég vil mjög lítið segja um skepnuna, en fólk verður að kíkja á sýninguna til að sjá hvaða skepna þetta er,“ segir Guðlaug leyndardómsfull. Sýningin stendur út apríl og hún er opin allan sólarhringinn. „Þetta er gluggagallerí þannig að fólk getur bara gengið fram hjá og séð sýninguna,“ bætir hún við. „En svo er það Vísnabók með CD. Við erum fjögur sem erum að gefa hana út. Í bókinni eru vísur af ýmsum toga og vísnalög við vísurnar – ég myndi segja að þetta væri ný kynslóð af vísnabókinni gömlu.“
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira