Bjóða börnum á danssýningu Friðrika Benónýsdóttir skrifar 21. febrúar 2014 09:30 Dansverkið F A R A N G U R er eftir Grímuverðlaunahafann Valgerði Rúnarsdóttur. MYND/Íslenski Dansflokkurinn
Í tilefni af vetrarfríi í Reykjavík hefur Íslenski dansflokkurinn ákveðið að bjóða börnum yngri en 13 ára frítt í fylgd fullorðinna á sýninguna Þríleik á Stóra sviði Borgarleikhússins á sunnudaginn, 23. febrúar, klukkan 20. Þríleikur samanstendur af dansverkunum Tilbrigði, F A R A N G U R og Berserkir. „Okkur langaði til að fá börn á danssýningu og því var tekin þessi ákvörðum um að nýta vetrarfríið til að bjóða börnum yngri en 13 ára á þessa sýningu,“ segir Alexía Björg Jóhannsdóttir hjá markaðsdeild Íslenska dansflokksins. „Boðið gildir fyrir eitt barn í fylgd með einum fullorðnum og gildir bara á þessa sýningu.“ Alexía segir þessa sýningu líklega til að höfða til barna, sérstaklega verkið Berserkir eftir Lene Boel, þar sem blandað er saman breikdansi, nútímadansi og ballett með akróbatísku tvisti. „Krakkar sem fylgjast með So You Think You Can Dance ættu að hrífast af þessu verki og ég hef trú á að þau hrífist líka af hinum verkunum tveimur,“ segir hún. Tilbrigði er eftir Láru Stefánsdóttur og F A R A N G U R er eftir Grímuverðlaunahafann Valgerði Rúnarsdóttur.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira