Krúttmundur sigrar hjörtu landsmanna Gunnar Leó Pálsson skrifar 4. febrúar 2014 09:00 Meðlimir kvenfélagsins /sys/tur f.v. Margrét Sesselja Kristjánsdóttir, Ingibjörg Ósk Jónsdóttir, Áslaug Eiríksdóttir, Elísabet Guðrúnar- og Jónsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Guðrún Inga Baldursdóttir.fréttablaðið/valli „
Við bjuggum til vélmennið okkar, hann Krúttmund, úr legókubbum og við forritum hreyfingarnar hans í tölvu, í gegnum Mindstorms-hugbúnaðinn sem Lego hannaði,“ segir Ingibjörg Ósk Jónsdóttir, nemi í hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Ásamt Ingibjörgu Ósk stofnuðu þær Helga Guðmundsdóttir, Áslaug Eiríksdóttir, Elísabet Guðrúnar- og Jónsdóttir kvenfélagið /sys/tur innan tölvufræðideildar Háskólans í Reykjavík en fleiri stúlkur eru í félaginu. Þær ætla að vera með sýningarbás á UT messunni sem fram fer næsta laugardag í Hörpu og kynna þar sínar hugmyndir og verkefni. Fólki býðst kostur á að stýra vélmenninu Krúttmundi og getur hann framkvæmt ýmislegt, hann er til að mynda lipur dansari. „Við erum með ýmislegt annað fyrir utan Krúttmund. Við ætlum að sýna magnaða hluti sem framkvæmdir eru með Raspberry Pi-smátölvum,“ útskýrir Ingibjörg Ósk. Um er að ræða smátölvu sem getur látið nánast allt gerast. „Tölvan var upphaflega búin til til þess að kenna börnum forritun í Bretlandi.“ Einnig ætla þær að leyfa gestum og gangandi að prófa Raspberry Pi-tölvuna sem inniheldur stýrikerfið Raspbian og þar er að finna leiki á borð snake, tetris og fleiri leiki. „Við höfum einnig gert Raspberry Pi-tölvuna að Nintendo-tölvu hermi, þar verður hægt að spila marga af vinsælustu NES- og SNES-leikjunum.“ Vélin verður tengd tölvuskjá, ásamt því að leikjafjarstýringar verða á staðnum og geta því gestir fengið að spila leiki og um leið rifjað upp æskuminningar sínar.
Leikjavísir Mest lesið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir GTA 6 velti Deadpool og Wolverine úr sessi Svífa um á bleiku skýi í GameTíví Oblivion Remastered: Nostalgían lifir góðu lífi Biðin langa: Rúmt ár í herlegheitin Hryllingskvöld hjá GameTíví Íslendingaslagur í Verdansk hjá GameTíví Skipulögð glæpastarfsemi hjá GameTíví Sjá meira