Samstarfsverkefni fimm skóla Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 31. janúar 2014 14:00 Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna samanstendur af frísklegum hópi ungmenna..
Tónlistarnemar, áttatíu og fimm talsins og flestir á framhaldsskólaaldri, skipa Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna sem heldur tónleika í Langholtskirkju á morgun klukkan 16. Þeir leika þrjá þætti úr saxófónkonsertinum Rætur eftir Veigar Margeirsson, Danzón númer 2 eftir Arturo Márquez og Sinfóníska dansa opus 64 eftir Edvard Grieg. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Einleikari á saxófón með hljómsveitinni er Sölvi Kolbeinsson sem hóf nám átta ára gamall og stundar nú nám bæði í klassískum og djass-saxófónleik hjá Sigurði Flosasyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík og Tónlistarskóla FÍH en hefur áður lært hjá Ólafi Jónssyni og Hafsteini Guðmundssyni. Auk þess að spila á saxófón leikur Sölvi á gítar og píanó. Hann hefur leikið djass á ýmsum veitingastöðum bæjarins ásamt poppi og rokki í alls konar hljómsveitum. Sinfóníuhljómsveitin er samstarfsverkefni fimm tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, Tónlistarskóla FÍH, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Garðabæjar og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira