Tónlist

Spila íslenska kvikmyndatónlist

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Lúðrasveit Þorlákshafnar ætlar að leika kvikmyndatónlist í Hörpu í febrúar.
Lúðrasveit Þorlákshafnar ætlar að leika kvikmyndatónlist í Hörpu í febrúar. mynd/ágústa ragnarsdóttir og davíð þór guðlaugsson
„Við erum að sýna fólki að lúðrasveitir spila ekki eingöngu í skrúðgöngum og á svoleiðis samkomum,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, trompetleikari og meðlimur Lúðrasveitar Þorlákshafnar.

Ása Berglind og félagar standa fyrir tónleikum í Norðurljósasal Hörpu 25. febrúar og verður þar leikin alls kyns kvikmyndatónlist. „Við ætlum að spila kvikmyndatónlist, bæði íslenska og erlenda. Af því tilefni að við erum þrjátíu ára í febrúar, fengum við Stefán Örn Gunnlaugsson til að útsetja kvikmyndasyrpu úr íslenskum kvikmyndum og erum við mjög stolt af því,“ segir Ása Berglind.

Lúðrasveitin mun leika lög úr kvikmyndum á borð við Engla alheimsins, Stellu í orlofi og Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu. Af erlendu efni mun sveitin flytja tónlist úr kvikmyndum á borð við Pirates of the Caribbean, Mary Poppins, Jaws, Star Trek, Star Wars og Harry Potter svo fátt eitt sé nefnt.

Í Lúðrasveitinni eru 45 meðlimir en þeir hafa fengið engan annan en Fjallabróðurinn Halldór Gunnar Pálsson til að vera kynnir á tónleikunum. „Hann mun að öllum líkindum bregða sér í ýmis líki úr kvikmyndasögunni í tilefni tónleikanna,“ bætir Ása Berglind við.

Lúðrasveitin hefur undanfarið komið fram með Jónasi Sig eftir að þau gáfu út plötuna Þar sem himin ber við haf í sameiningu árið 2012. Miðasala á tónleikana er á midi.is en þeir eru hluti af tónleikaröðinni Lúðraþytur í Hörpu.

Miðasala fer fram hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×