Fyrstu myndir af nýjum Audi Q7 Finnur Thorlacius skrifar 15. desember 2014 09:46 Ný kynslóð Audi Q7 jeppans.
Audi mun kynna nýja gerð Q7 jeppans á bílasýningunni í Detroit sem hefst í næsta mánuði. Myndum af bílnum hefur hinsvegar verið lekið og því hefur Audi einnig látið frá sér allar upplýsingar um nýja bílinn. Athyglisverðar breytingar eru á bílnum. Hann hefur lést um 325 kíló og vegur nú 1.995 kíló. Eyðsla hans hefur lækkað um allt að 28%, mismunandi þó eftir vélargerðum. Bíllinn er byggður á MLB 2 undirvagni sem smíðaður er að 41% hluta úr áli, en þetta er sami undirvagn og næsta kynslóð Porsche Cayenne og nýr Bentley jeppi munu fá. Allar gerðir Audi Q7 jeppans verða fjórhjóladrifnar og með 8 gíra sjálfskiptingu. Afl 3,0 lítra dísilvélarinnar er nú komið í 268 hestöfl, en seinna mun einnig bjóðast aflminni 215 hestafla dísilvél í jeppann. Það tekur Q7 ekki nema 6,3 sekúndur að ná 100 km hraða með aflmeiri dísilvélinni, en samt er hún 23% eyðslugrennri en í núverandi kynslóð Q7. Seint á næsta ári mun Audi Q7 fást með tvinnaflrás, þ.e. með dísilvél og rafmótorum og mun heildarafl þess verða 368 hestöfl og togið 700 Nm. Aka má þeim bíl fyrstu 50 kílómetrana eingöngu á rafmagni. Audi mun afhenda fyrstu Q7 jeppana af nýrri kynslóð í byrjun næsta sumars. Nýr Q7 er talsvert breyttur að framan.
Mest lesið Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina Innlent Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Erlent „Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Innlent „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Innlent Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Erlent Þúsundir hafi orðið af milljónum Innlent Moskítóflugan lifði kuldakastið af Innlent Hjóluðu 1300 kílómetra meðfram Dóná með börnum sínum Innlent Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Innlent