Gott að láta rjúpuna hanga í fimm til sjö daga Karl Lúðvíksson skrifar 20. nóvember 2014 19:47
Þeir rjúpnaveiðimenn sem náðu feng sínum á þessu hausti hafa margir misjafnar venjur þegar kemur að því að láta fuglinn hanga. Það eru nokkuð misjöfn svörin sem koma frá veiðimönnum varðandi hversu lengi rjúpan á að hanga en algengast er að hún hangi í 5-7 daga og gott er að minna þá sem voru að veiða sínar fyrstu rjúpur að láta þær alltaf hanga á hausnum. Varðandi tímalengdina þá eru sumir sem láta hana hanga lengur til að fá meira bragð og lengsti tíminn sem við fengum nefndan var þrjár vikur en ég get ómögulega mælt með því. Rjúpan er látin hanga til að hún meyrni og eins til að fá bragð í bringurnar úr fóarninu og það skal taka það fram að þú finnur mikin bragðmun á rjúpu sem fær að hanga og þeirri sem fær ekki að hanga. Það er ein þumalputtaregla sem er gott að hafa varðandi hversu lengi hún er að hanga og hún er eftirfarandi. Þegar samanlögð tala dagafjölda og hitastigi á hverjum degi nær 40, eða sem næst því, er hún búin að hanga nóg. Sem dæmi ef það er 5 stiga hiti þá má hún hanga í 7 daga. 7 dagar sinnum 5 stiga hiti gera 35 að viðbættum dagafjölda sem er 7 gerir 42 sem er rétt yfir passlegt. Við ætlum ekki að blanda okkur í það hvernig rjúpan er matreidd því þar er siður hvers heimilis oft fjörgamall en hvetjum áhættugjarna líka til að prófa nýja uppskrift, þ.e.a.s. ef þú leggur í að breyta hefðum.
Stangveiði Mest lesið Eitt besta laxveiðisumarið senn að enda komið Veiði Kennslumyndband um notkun tökuvara í veiði Veiði Hættir að veiða í Skotlandi Veiði Fín veiði á Skagaheiði Veiði Stórlax og sjóbirtingur í Affallinu Veiði Sauðlauksvatn hefur verið að gefa feyknagóða veiði Veiði Veiðin með Gunnari Bender: „Það er búið að vera hundleiðinlegt veður í Reykjavík“ Veiði Veiðin komin á gott skrið í Veiðivötnum Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Ytri Rangá fer vel af stað Veiði