Hver kannast ekki við þá þraut að reyna að loka plastpoka en í honum er of mikið til að hægt sé með góðu móti að hnýta hnút? Eða koma á teygju. Hér er ráð við því.
Á internetinu kennir ýmissa grasa, ekki þarf um það að fjölyrða og þar innan um má finna ljómandi fín húsráð. Á meðfylgjandi myndbandi má til að mynda sjá gott ráð og einfalt við að loka plastpoka. Klippt er ofan af plastbrúsa eins og til dæmis þeim sem í er ávaxtasafi. Gætið þess að hreinsa hann vel áður.
Þegar búið er að klippa þannig að tappinn situr eftir ásamt hálsi brúsans er hægt að draga enda pokans í gegnum stútinn, bretta uppá og skrúfa þá tappann á aftur. Voila!
Húsráð Vísis: Snjallræði til að loka plastpokum
Tengdar fréttir
Snyrtilegri leið til að þrífa ofna vekur athygli
Aðferðin er sögð binda enda á að fólk þurfi að skrúbba og skrapa í langri tíma til að gera ofninn hreinan á ný.