Tónlist

Ný söngstjarna með seiðandi rödd heillar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Íris Lóa Eskin gaf nýverið út lagið Hunting Game sem hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlunum. 

Íris er aðeins tvítug og hefur mikinn áhuga á að syngja og semja tónlist.

„Í sumar var ég í Boston og tók nokkra áfanga í Berklee College of Music. Ég lærði heilmikið þar,“ segir Íris. Þegar hún sneri aftur heim beið hennar spennandi tónlistarverkefni.

„Þá var pródúsentinn minn, Aggi Friðbertsson, búinn að búa til lag. Ég samdi svo textann við lagið og það kom svona vel út. Við sendum svo lagið til London í masteringu hjá Christian Huant,“ bætir Íris við um nýja lagið.

Hún ætlar að fylgja velgengni Hunting Game eftir.

„Það eru gríðalega spennandi tímar framundan, nýtt efni frá mér og Agga og tónlistarmyndband.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×