Íslenski boltinn

Undankeppni EM 2016: Miðasala hefst í hádeginu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóhann Berg og félagar náðu frábærum árangri í síðustu undankeppni.
Jóhann Berg og félagar náðu frábærum árangri í síðustu undankeppni. Vísir/Vilhelm
Opnað verður fyrir sölu á heimaleiki karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu í undankeppni EM 2016 klukkan 12 á hádegi í dag. 400 miðar verða til sölu. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Miðinn tryggir kaupanda sama sæti á alla fimm heimaleiki Íslands á Laugardalsvelli þar sem mótherjarnir verða Hollendingar, Tyrkir, Tékkland, Kasakstan og Lettland. Að auki fá mótsmiðahafar forkaupsrétt á aðgöngumiðum fyrir vináttuleiki A landsliðs karla. Hægt er að kaupa mótsmiða í þrjú svæði og þar með í þremur verðflokkum eins og áður. Ódýrustu miðarnir kosta 10 þúsund krónur en þeir dýrustu 25 þúsund krónur en nánari upplýsingar um svæðin þrjú má sjá hér.

Seldir verða um 130 miðar í hvert af þessum þremur svæðum, eða 400 miðar alls.  Mest er hægt að kaupa átta mótsmiða á hverja kennitölu. Opnað verður fyrir sölu á fleiri mótsmiðum ef þörf krefur.

Mótsmiðasalan fer fram á midi.is.


Tengdar fréttir

Fékk rangar upplýsingar um hvenær miðasala hæfist

"Ég hringdi í Mida.is í gær og maðurinn sagði mér að miðasala myndi byrja í fyrsta lagi klukkan 10 eða þá klukkan 12,“ segir Sigmundur Einar Jónsson, grjótharður stuðningsmaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.

"KSÍ er ekki geðslegur klúbbur“

Margir Íslendingar hafa brugðist illa við fréttum af því að uppselt hafi orðið um miðja nótt á landsleikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×