Viðskipti erlent

Facebook lá niðri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Notendur um allan heim komust ekki inn á samfélagsmiðilinn Facebook í morgunsárið í um tuttugu mínútur þegar vefsíðan lá niðri.

Fjölmargir brugðu sér í heimsókn til samkeppnisaðila á borð við Google+ og Twitter og kvörtuðu sáran yfir að komast ekki inn á Fésbókina sína. Brugðu margir á leik við það tilefni eins og sjá má að neðan.

Nokkuð fræg eru orð sem höfð voru eftir Mark Zuckerberg, stofnanda Facebook, þess efnis að Facebook mætti aldrei liggja niðri eins og sést í myndskeiðinu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×