Viðskipti erlent

Notendum Ebay skipað að skipta um lykilorð

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VISIR/AFP
Uppboðsvefsíðan Ebay fer fram á að allir notendur síðunnar breyti tafarlaust um lykilorð í kjölfar tölvuárásar sem á að hafa átt sér stað í lok febrúar á þessu ári.

Ekki komst upp um innbrotið fyrr en fyrir um tveimur vikum síðan og talið er að þrjótarnir hafi komist yfir aðgangsupplýsingar starfsmanna Ebay og þannig komist í tæri við innanhúsupplýsingar sem þeim voru aðgengilegar.

Aðstandendur síðunnar segja að þó að engum fjárhagslegum upplýsingum notenda hafi verið stefnt í voða hafi tölvuþrjótarnir aflað sér fjölda persónulegra upplýsinga, til að mynda nöfn, heimilsföng, netföng, lykilorð, símanúmer og fæðingardaga allra notenda síðunnar.

Óljóst er af hverju rekstraraðilar Ebay brugðust ekki fyrr við gallanum í öryggiskerfi síðunnar sem þeir höfðu haft vitneskju um í nokkra mánuði.

Búist er við því að notendur síðunnar fái tölvupóst í dag þar sem þeir eru hvattir til að breyta lykilorðum sínum. Einnig verður þeim ráðlagt að breyta lykilorðum sínum á öðrum vefsíðum ef þeir hafa reitt sig á sama lykilorð annars staðar á netinu.

Frekari upplýsingar má nálgast á vef Business Wire.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×