Golf

Fjölgað um eitt mót og spilað á nýjum velli á mótaröðinni í sumar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ, messar yfir liðinu í dag.
Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ, messar yfir liðinu í dag. Vísir/Daníel
„Við byrjum fyrr en venjulega þannig allir okkar bestu kylfingar eru ekki komnir heim. Þess vegna er gaman að sjá það sé full skráning í fyrsta mót. Það sýnir að það sé mikil spenna og stemning fyrir mótaröðinni,“ segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands, í samtali við Vísi.

Hörður og hans menn hjá GSÍ kynntu verkefni sumarsins á blaðamannafundi í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag, bæði Eimskipsmótaröðina og Íslandsbankamótaröð unglinga. Fyrsta mótið, Nettó-mótið, fer fram strax um helgina á Hólmsvelli í Leiru og er full skráning þrátt fyrir að byrjað sé fyrr en vanalega.

Íslandsmótið í höggleik fer fram í fyrsta skipti á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Klúbburinn fagnar 20 ára afmæli sínu á árinu og heldur upp á það með því að hýsa stærsta mót ársins.

Rúnar Arnórsson (fyrir miðju) er ríkjandi stigameistari á Eimskipsmótaröðinni.Vísir/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, fimmfaldur Íslandsmeistari í höggleik, er meðlimur í GKG og starfsmaður klúbbsins og fær því kjörið tækifæri til að jafna þá BjörgvinÞorsteinsson og landsliðsþjálfarann ÚlfarJónsson á heimavelli í sumar. Björgvin og Úlfar hafa báðir unnið sex Íslandsmeistaratitla.

Símamótið, þriðja mót ársins á Eimskipsmótaröðinni, fer fram á Hamarsvelli í Borgarnesi en þetta er í fyrsta skipti sem leikið er þar á mótaröðinni. Í heildina eru öll fimm mótin á mótaröðinni, að undanskildum Íslandsmótunum tveimur, haldin fyrir utan höfuðborgarsvæðið.

„Ástæðan er fyrst og fremst að álagið er mikið á völlunum á höfuðborgarsvæðinu og við erum að nýta vellina á jaðarsvæðunum. Þetta eru frábærir vellir sem við eigum út um allt land og það er samkomulag í hreyfingunni um að nýta þá í mótahaldið,“ segir Hörður við Vísi.

Veturinn fór illa með marga golf- og knattspyrnuvelli og koma þeir misvel undan vetri. En hvernig er standið á þeim völlum sem spilað verður á í sumar?

„Þeir eru ekkert allir í 100 prósent standi en þeir standa betur en á horfði. Menn fóru í mikla vinnu í vor, eða frá febrúar, að brjóta klaka og vinna teiga og flatir. Það tókst, en aftur á móti eru skemmdir á brautum eftir þennan erfiða vetur.“

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, fór yfir verkefni landsliða Íslands í sumar.Vísir/Daníel
Fjölgað hefur verið um eitt mót á Eimskipsmótaröðinni en það var krafa frá afrekshluta GSÍ,  landsliðsþjálfaranum og fleirum, að sögn Harðar, sem varð til þess. Menn vildu fá fleiri mót fyrir bestu kylfinga landsins.

„Við erum í sjálfu sér bara að auka framboð á mótum fyrir okkar bestu kylfinga og sjá hvort það skilar sér fyrir þá. Vandamálið sem við búum við er, að tugir okkar bestu kylfinga eru í Háskólum í Bandaríkjunum þannig þeir fara snemma á haustin. En við reynum eins og við getum að teygja sumarið eins og við getum og þetta er hluti af því.

Mótin á Eimskipsmótaröðinni:

1. Nettó-mótið, 25.-26. maí á Hólmsvelli í Leiru.

2. Egils Gull-mótið, 30.maí-1. júní á Strandavelli á Hellu

3. Símamótið, 13.-15. júní á Hamarsvelli í Borgarnesi

4. Securitas-mótið (Íslandsmótið í holukeppni), 27.-29. júní á Hvaleyrarvelli í Hafnafirði

5. Eimskipsmótið (Íslandsmótið í höggleik), 24.-27. júlí á Leirdalsvelli í Garðabæ

6. Mót á Garðavelli á Akranesi 15.-17. ágúst

7. Goða-mótið, 30.-31. ágúst á Jaðarsvelli á Akureyri




Fleiri fréttir

Sjá meira


×