Golf

Brendon Todd sigraði Byron Nelson meistaramótið

Todd fagnar góðum fugli á lokahringnum í kvöld.
Todd fagnar góðum fugli á lokahringnum í kvöld. AP/Getty
Bandaríski kylfingurinn Brendon Todd sigraði á Byron Nelson meistaramótinu sem kláraðist í kvöld en sigurinn er hans fyrsti á PGA-mótaröðinni. Todd deildi forystunni fyrir lokahringinn á Las Colinas vellinum með Suður-Afríkumanninum Louis Oosthuizen og voru þeir á tíu höggum undir pari.

Todd gaf þó heldur betur í á lokahringnum og lék á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari en hann sigraði mótið að lokum með tveggja högga mun. Fyrir sigurinn fékk hann rúmlega 140 milljónir í verðlaunafé ásamt því að hann hefur tryggt sér tveggja ára þátttökurétt á PGA-mótaröðinni.

Oosthuizen fann sig ekki á lokahringnum og lék á 74 höggum eða fjórum höggum yfir pari, hann endaði jafn í 11. sæti á sex undir pari.

Kanadamaðurinn Mike Weir hirti annað sætið í mótinu eftir að hafa endað á samtals 12 höggum undir pari en þessi fyrrum sigurvegari á Masters hefur átt mjög slæmu gengi að fagna á undanförum árum.

Hefur hann meðal annars glímt við meiðsli á olnboga og þurft að fara í tvær aðgerðir vegna þeirra. Hann hafði fyrir mótið um helgina aðeins komist í gegn um niðurskurðinn á þremur mótum af fjórtán á PGA-mótaröðinni á þessu ári en það væri mikið fagnaðarefni ef þessi skemmtilegi kylfingur, sem unnið hefur 15 atvinnumannamót á ferlinum væri að finna sitt gamla form á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×