Fótbolti

Búið spil hjá Real Madrid

Real Madrid stimplaði sig út úr titilbaráttunni á Spáni í kvöld þegar liðið tapaði óvænt, 2-0, gegn Celta Vigo.

Það var enginn Ronaldo í liði Real og Bale byrjaði á bekknum. Þeir sem tóku við keflinu voru ekki klárir í verkefnið.

Hinn þrítugi Brasilíumaður Charles var aftur á móti í stuði og skoraði bæði mörk Celta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×