Viðskipti erlent

Krár opnar lengur í Englandi vegna HM

Finnur Thorlacius skrifar
Stuðningsmenn enska landsliðsins kætast, sem og kráareigendur.
Stuðningsmenn enska landsliðsins kætast, sem og kráareigendur.
Barir og krár í Englandi hafa fengið heimild frá hinu opinbera að hafa opið lengur á þeim dögum sem England spilar á komandi heimsmeistarakeppni í Brasilíu í sumar. Samkvæmt enskum lögum skulu þær loka kl. 23 en vegna breytingarinnar mega þeir hafa opið í fjóra klukkutíma eftir að leikir Englands hafa verið flautaðir á.

Það var forsætisráðherrann David Cameron sem hjó á hnútinn og lagðist á árar með kráareigendum eftir að þeir höfðu upphaflega fengið dræmar móttökur við beiðni sinni. Cameron telur að þessi viðburður sé Englendingum svo mikilvægur og að margir þeirra óski sér einmitt að njóta hans á krám landsins.

Þeir barir sem óska þess að hafa aukinn opnunartíma á öðrum spiladögum keppninnar þar sem England er ekki að spila geta einnig sótt um undanþágur frá hefðbundnum lokunartíma og er það væntanlega gert fyrir erlenda ferðamenn sem vilja fylgjast með sínu liði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×